Tökum M&M poka...
... og flokkum kúlurnar í hópa eftir litum. Notum svo flokkunartækið okkar (litinn) til að lýsa því hvað einkennir hvern hóp. Ótrúlegt en satt, þá kemur í ljós að allar kúlurnar sem fóru í rauða hópinn eru rauðar!
Nokkurn vegin á þessa leið er röksemdafærslan í a.m.k. annarri hverri grein sem ég les í þessu bölvaða kennsluréttindanámi, hönnuðu fyrir hálfvita.
Nei, bíðið við, þetta er víst rangur misskilningur. Ég þjáist greinilega af raunvísindahroka og skil ekki eigindlegar rannsóknir.
Dæmi: (Þetta á ég virkilega að lesa til prófs)
Við þetta má bæta rannsókn Kristínar Aðalsteinsdóttur (2002) á samskiptum kennara og nemenda út frá kenningum félagsfræðinnar um táknræn samskipti (symbolic interaction) og innsæi (empathetic behaviour). Í rannsókninni aflaði Kristín gagna um framkomu kennara (látbragð, nálægð, snertingu, augnsamband og svipbrigði), notkun raddarinnar (raddblæ, raddstyrk og raddbeitingu), agastjórnun, kennsluaðferðir og úrræði fyrir börn með sérþarfir. Á grundvelli gagnanna skipti hún kennurunum í þrjá flokka: Þá sem sýndu afburðahæfni, miðlungshæfni og ónóga hæfni. Samkvæmt niðurstöðunum voru sameiginleg einkenni bestu kennarana að þeir voru rólegir, eftirtektarsamir og töluðu lágt, voru góðir hlustendur og jafnframt næmir á það sem nemendur segja án orða, hlýir í viðmóti og óragir við að sýna tilfinningar. Þeir virtust taka tillit til mismunandi námsþarfa nemenda og velja kennsluaðferðir sem virkjuðu þá. Þessir kennarar voru meðvitaðir um að þeir voru nemendum fyrirmynd og síðast en ekki síst sköpuðu þeir, á áreynslulausan hátt, agað starfsumhverfi, meðal annars með samræðum við nemendur.

12 Comments:
Var ég ekki annars búin að segja ykkur að ég er ákveðin í því að verða ekki kennari?
Já, þetta er sennilega eitt mesta bla sem ég hef lesið...og er ég þó í lögfræði.....
Eru kennarar nokkurn tíma meðvitaðir um það hvernig kennarar þeir eru, eða vilja vera. Er þetta ekki bara persónuleiki hvers og eins einstaklings?
Hvenær ertu annars búin í prófum?
Ég er búin á morgun! :)
Hvað með þig? Hvenær ert þú búin? Náðiru að skila ritgerðinni á réttum tíma?
Ég skilaði ritgerðinni 4.maí og tók mér frí fram yfir síðustu helgi. Það var yndislegt.
Núna er ég svo að læra fyrir próf sem er 15.maí og á líka eftir að verja ritgerðina mína (veit ekki ennþá hvenær það verður)
verðum að fara að hittast eitthvað.......það er ekki hægt að fá allar fréttir á netinu!!
Ég veit það, þetta er út í hött!
Svo er þetta gamla góða: annað hvort er maður á haus sjálfur, eða þorir ekki að hafa sambandi því maður er viss um að allir aðrir séu svo uppteknir!
Hvað segið þið? Er einhver tími til að hittast frá því að þú klárar prófið Brynhildur og þangað til þið farið út?
Mér finnst fínt þið skrifið fréttir ykkur á netið. Ekki hætta að skrifa...
Úff, já. Sigrún þú átt alla mína samúð með lesturinn.
Gangi ykkur vel skvísur :-)
16.maí gæti hugsanlega virkað....
Held að Haffi sé að fara norður á Akureyri að halda námskeið að morgni 17.maí svo að 16. ætti alveg að geta gengið.
Hvernig ætli hæfni kennarans hafi verið metin. Allaveganna ekki út frá einkunnum nemanda, það er algjört nó-nó. Það hlýtur líka að vera fylgni milli þess hve vel maður heldur kúlinu vs. hversu góðir nemendurnir eru.
Palli minn, þú skalt ekki dirfast að nefna einkunnir á nafn. Þær eru verkfæri djöfulsins og láta bara þeim sem fá lágar einkunnir líða illa!
Nei, án gríns þá var hæfni kennarans metin út frá gögnunum sem innihéldu einungis upplýsingar um raddblæ o.s.frv. Hún var virkilega að lýsa kvarðanum sínum, ég skil ekki hvers vegna hún var að kíkja á þetta fólk á annað borð!
Pawel benti mér líka á góða síðu: Þú ert nú ekki sú eina. Árið 1996 skrifaði Alan D. Sokal eðlisfræðingur
við NYU greinina **"Transgressing the Boundaries: Toward a
Transformative Hermeneutics of Quantum Gravity"*
http://www.physics.nyu.edu/faculty/sokal/transgress_v2/transgress_v2_singlefile.html*
Sokal var orðin pirraður á bulli í Söndru Harding og öðrum,
póstmódernistum/feministum sem massaframleiddu "greinar" í hitt "virta"
tímarit the Social Text um karlkæga eða imperialískar hliðar undirstaðna
nútímavísinda. Sokal ákváð að skrifa eina slíka grein, sem var
samhengislaust bull frá upphafi til enda. Greinin fékkst birt í The
Social Text.
Greinina og umfjöllun um hana má finna hér:http://www.physics.nyu.edu/faculty/sokal/transgress_v2/transgress_v2_singlefile.html
Brynhildur: Ég tek 16. maí frá! Fleiri með?
Já ég hef séð Sokal greinina, hún er algjör snilld.
Ein lausn á einkunnavandamálinu er að gefa bara A fyrir viðleitni :)
Já, hvernig væri það nú! Er ekki tími kominn til að pína nemendur með prófastressi! :)
Sendu inn athugasemd
<< Home