Allir úti um allt...

mánudagur, júní 19, 2006

Chao!

Ég veit ekki með ykkur, en ég er komin með upp í kok á þessari loðnu sem blasir við manni í hvert sinn sem maður skoðar síðuna.

Í fréttum er það helst að Sigrúnu tókst upp á eigin spýtur (ekkert "Eeeeeeerling koddaðeins" + blikk) að hlaða niður Perl á tölvuna sína, búa til forrit og fá það til að gera það sem hún vildi að hún gerði. Nú segja sumir kannski "puh, það er ekkert mál, Perl er svo skítlétt" en ég vil benda þeim hinum sömu á það að Sigrún og tölvur eru óvinir númer eitt, ég tala nú ekki um þegar málið snýst að forritun, og þetta litla afrek fékk mína til að gleðjast ótæpilega. Við erum að tala um manneskju sem kláraði bæði tölvunarfræði 1 og 2 án þess að geta "kompælað" svo mikið sem eitt forrit! En nóg um það.

Haldiði að ég sé ekki búin að henda kellu út? Aaalllavegana, til vonar og vara:

Við fjölskyldan (öll fjögur ;) ) erum á leiðinni til Króatíu eeeldsnemma miðvikudagsmorgun. Við erum að tala um brottför kl. 06:00 svo það þýðir að við þurfum að vakna kl. 02:30. Gleði, gleði, gleði. Þar ætlum við að liggja í leti í nákvæmlega tvær vikur og nei, við erum ekki á sama stað og Jóhanna og Palli, þó það hefði vissulega verið óvænt ánægja. Við náum vonandi í skottið á þeim á Klakanum, en við komum heim þann 5. júlí (sem glöggir menn hefðu getað sagt sér sjálfir). Enn betra væri að ná í skottið á Tótunni um leið, hvað segir vaktaplanið?

Þá er það ekki fleira að sinni. Verið þið sæl.

6 Comments:

At 19 júní, 2006 15:22, Blogger Sigrún Helga said...

p.s. Ég skora á Spánarfara að skella inn a.m.k. mynd eða tveimur frá ferðinni!

 
At 22 júní, 2006 09:27, Blogger Brynhildur said...

Góða ferð öll sömul!!

 
At 23 júní, 2006 11:31, Blogger Innevs said...

Taningsflokkur. Ég vil sjá brúnt fólk koma til baka. Tool rules!

 
At 27 júní, 2006 11:14, Anonymous annahera said...

Heyrðu Sigrún, veistu hvort þú ert með strák eða stelpu? Gleymdi alltaf að spyrja þig að því sem gengur náttúrlega ekki því það skiptir auðvitað öllu máli!!!

 
At 05 júlí, 2006 02:08, Anonymous Andreas Guðmundsson said...

puh, það er ekkert mál, Perl er svo skítlétt, prófaðu þetta í smala væna.

 
At 05 júlí, 2006 21:11, Blogger Sigrún Helga said...

Andreas: Þú getur sjálfur verið smali.

Anna: Hef ekki fengið færi á að vita það enn, en fer í sónar 18. júlí...

Svenni: Brúnka, smúnka, rúnka?

 

Sendu inn athugasemd

<< Home