Allir úti um allt...

mánudagur, júlí 10, 2006

Útilega!

Þarf ekki að fara að ákveða atriði eins og:

- Hvert á að fara?
- Hvenær á að leggja af stað?
- Hverjir ætla á bíl og hverjir fara með hverjum?
- Hverjir ætla að vera með tjöld/fellihýsi og hverjir ætla að sofa hjá hverjum?
- Sameiginleg matarinnkaup o.fl.

Vonast til að heyra frá skipulagssnillingunum fljótlega ;)

14 Comments:

At 10 júlí, 2006 13:43, Blogger Brynhildur said...

Hverjir ætla að sofa hjá hverjum, hahaha.......það er spurning að vera með það skipulagt...fara í svona makaskipti?

En yfir í siðlegri pælingar..Við Haffi verðum með fellihýsið og jeppann. Mér finnst nú við hæfi að bjóða litlu fjölskyldunni pláss í fellihýsinu enda um að ræða ófríska konu og smábarn!!

 
At 10 júlí, 2006 13:52, Blogger Brynhildur said...

Hugsa að við Haffi getum lagt af stað klukkan 17 á föstudag, vonandi fyrr samt. Þeir sem eru búnir í vinnu á svipuðum tíma geta komið með okkur, nóg er plássið allavega.

Varðandi staðsetningu þá á að rigna á öllu suðurlandsundirlendinu um helgina...alveg týbískt

 
At 10 júlí, 2006 14:53, Blogger Sigrún Helga said...

Brynhildur dóni! ;) Vá, en án gríns þá sá ég sá ekki bloggið frá þér fyrr en ég var búin að skrifa hitt :)

Annars líst okkur ekki illa á vist í hlýju og notalegu fellihýsi og við ættum að verða tilbúin til farar í raun hvenær sem er. (Auðvelt mál að hætta fyrr í vinnunni).

Mér er nokk sama hvar við verðum.

 
At 10 júlí, 2006 17:31, Blogger Tóta said...

Ja ég kem allavega með bjór og pollagalla þannig að ég get alveg eins sofið undir berum himni!

 
At 10 júlí, 2006 20:21, Anonymous Matti said...

Hæ, hæ, bara örstutt án þess að fokka upp í skipulagningunni hjá ykkur: "Sigrún ertu ófrísk?" ég er náttúrulega örlítið út úr lúppunni en mér sýnist ég þó geta lagt saman tvo og tvo út frá því sem Brynhildur sagði og svo þú í kommentunum...

allavega innilega til hamingju bæði tvö og haldið áfram að fjölga í yndislegri fjölskyldu!!!!!!

 
At 10 júlí, 2006 23:05, Blogger Sigrún Helga said...

Þú ert ekki eins vitlaus og þú lítur út fyrir að vera Matti ;) Kærar þakkir :)

 
At 10 júlí, 2006 23:11, Blogger Erling Jóhann said...

Nei, nei, Matti. Það er bara ég sem er lítill og óléttur.

 
At 11 júlí, 2006 08:06, Blogger Sigrún Helga said...

Flott. Samkvæmt veðurspánni þurfum við að sigla norður til Akureyrar til að flýja rigninguna. Það gæti þó allt breyst...

 
At 11 júlí, 2006 08:19, Blogger Innevs said...

Laugarvatn? Flúðir? Hellnar? Norðurárdalur? Sveðjukot?

Þetta eru sumsé tillögur.

 
At 11 júlí, 2006 09:38, Blogger Tóta said...

Hvernig væri þá bara að skella sér til Akureyris!?!

 
At 11 júlí, 2006 11:09, Blogger Sigrún Helga said...

Akureyrar Tóta! (Nema þetta hafi verið grín?).

Mér líst massavel á það, enda hálfur Sléttuúlfur, þó ég skilji vel ef öðrum finnist það of langt :)

En hvað með mat? Hefur "fljótlegt fyrri daginn og massagott seinni daginn" ekki gefið góða raun? E-r með djúsí uppástungur?

Sigrún sem er í tæpu netsambandi, ekki tölvupóstsambandi, og er orðin massaspennt (en ekki hvað) :)

 
At 11 júlí, 2006 11:55, Blogger Brynhildur said...

Fljótlegt fyrri daginn og massagott seinni daginn hljómar frábærlega. Ég kem með þá tillögu að geyma lambalærið heima í þetta skiptið, er alveg til í að prófa eitthvað nýtt-kannski svínalund eða annað gott kjöt?

Varðandi staðsetningu er mér eiginlega alveg sama. Hef til dæmis aldrei gist í Vaglaskógi!Annars erum við vön að vera í rigningu...

 
At 11 júlí, 2006 16:09, Blogger Sigrún Helga said...

Þurfum við ekki bara að hittast og plana? Ég býð heimilið okkar, hvaða kvöld sem er í vikunni (þar með talið kvöldið í kvöld). Hvenær komist þið?

 
At 11 júlí, 2006 16:52, Blogger Tóta said...

Ég kemst annað kvöld eftir 9 en ekki fim. Mín vegna er þó í lagi að þið hittist án mín og planleggið;)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home