Allir úti um allt...

fimmtudagur, júní 30, 2005

Veðurspáin lítur vel út...!!!

Á föstudag: Suðaustan 5-10 m/s og dálítil rigning eða skúrir, en úrkomulítið N-lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Norðurlandi.
Á laugardag: Hæg suðlæg átt og léttir víða til, en smáskúrir SV- og V-lands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag: Norðaustanátt og rigning, einkum austantil á landinu. Hiti 7 til 17 stig, mildast SV-lands.
Það er laust pláss fyrir tvo í tjaldinu okkar. Er einhver sem hefur áhuga á að gista hjá okkur?
Svo það sé á hreinu þá ætlum við Svenni að kaupa kjöt og pylsur og pylsubrauð fyrir allan mannskapinn og fisk handa Hörpu. Tóta ætlar að koma með pyslumeðlæti, Brynhildur og Haffi sjá um kartöflur og Harpa og Beggi um grænmetið. Hver tekur sósuna? Ekki treysta mér fyrir henni ;)
Svo á ég nóg af pappadiskum og plastglösum og mér skilst að Sigrún eigi líka eitthvað af því. Svo ekki taka svoleiðis með ykkur, bara hnífapör - ekki má gleyma þeim, sælla minninga ;)
Ég verð búin í vinnunni um hádegi á morgun og þá skutlast ég til Tótu og sæki hana í vinnunni. Við skundum saman inn í Hafnarfjörð og fyllum bílinn með hústjaldi og reynum svo að troða Hörpu einhvers staðar inn á milli. Svo förum við í Hólana og sækjum enn meira dót og kannski Svenni fái að fljóta með. Svo brunum við á Hóla!!! Hlakka ýkt til ;)

5 Comments:

At 30 júní, 2005 12:08, Blogger Tóta said...

Já já, ég kem þá bara með pylsumeðlætið. Þarf maður bara að vera snöggur að pant-koma-með-eitthvað dæmi!?! Er þá ekki eitthvað annað sem ég get komið með? Mér finnst ég ekkert rosalega merkileg í þessu öllu saman ;)

 
At 30 júní, 2005 12:51, Anonymous Nafnlaus said...

bara svo þið vitið, þá komum við í stutta heimsókn til Íslands um næstu helgi til að vera við jarðaför hjá afa Palla

við erum svo skemmtileg að þið eruð æst í að hitta okkur, right!

knús, Jóhanna

 
At 30 júní, 2005 12:59, Anonymous Nafnlaus said...

já, og góða skemmtun í útilegunni um helgina, Jóhanna

 
At 30 júní, 2005 20:38, Blogger Tóta said...

Ú, jeij. Hlakka ýkt til að sjá ykkur - þó að tilgangur ferðarinnar sé ekkert rosaskemmtilegur.

 
At 01 júlí, 2005 11:21, Blogger harpa said...

Já og ég var skrifuð á sósuna og kartöflurnar... held það verði nóg af sósu í þessari ferð!

 

Skrifa ummæli

<< Home