Allir úti um allt...

laugardagur, maí 14, 2005

Búið... vonandi!

Jæja, þá er síðasta prófinu lokið - vonandi! Þetta var svo drullu erfitt að það eru bara töluverðar líkur á að maður verði að endurtaka leikinn í haust. Ekkert smá fúlt að enda svona og líka þegar útskrift er í húfi. En nú er komið að afslöppun! Við Svenni ætlum að fara upp í Sveðjukot á morgun og verðum fram á þriðjudag. Og svo hefst vinnan. Að lokum vil ég óska Brynhildi og Tótu góðrar ferðar og til hamingju með próflokin allir sem voru að klára :) Tóta, þú verður að vera dugleg að blogga á meðan þú ert úti svo við vitum að þú sért á lífi!!!

2 Comments:

At 15 maí, 2005 12:30, Blogger Tóta said...

Já - alveg ömurlegt að enda þetta svona! En þetta er búið í bili og ég er að fara til útlanda:) Hafið það sem allra best allir og ég læt heyra frá mér.

 
At 17 maí, 2005 22:46, Blogger Guðlaug said...

Takk, Jóhanna mín! Ég er strax farin að hlakka til að sjá þig ganga niður kirkjugólfið...

 

Skrifa ummæli

<< Home