Eitt próf eftir...
Jæja, þá er bara eitt próf eftir hjá mér og Tótu í Háskóla Íslands! Við höfum mikið verið að ræða hvernig verður næsta vetur hjá okkur í DTU. Þar er víst vinnudagurinn frá 8 til 17 og svo er maður bara búinn. Hlakka mikið til að prófa það :) Annars fórum við nokkrar skvísur úr bekknum í Kringluna í gær og keyptu þær ýmislegt sem þarf að hafa með sér í Afríku: sólhatt, sólgleraugu, sandala og klósettpappír!!! Já, þeim hefur verið ráðlagt að hafa alltaf með sér klósettpappír. Þetta verður örugglega æðisleg upplifun hjá þeim, en þau eru að fara að skoða pýramídana á þriðjudaginn! Mér finnst pínu leiðinlegt að vera ekki að fara með en ég með allt mitt ofnæmi og útbrot er líka pínu fegin að vera ekki að fara.

2 Comments:
Sigrún, ætlaðir þú ekki að halda síðunni uppi á meðan við værum í prófum. Mér finnst þú ekki alveg vera að standa þig!
Jæja best að halda áfram að mygla yfir tölgr og rafsfr ;)
Djöfull mun ég rokka í Köben - er alveg að verða búin á því hérna!
Skrifa ummæli
<< Home