Allir úti um allt...

mánudagur, júní 27, 2005

Já rigndu bara eins og þú getur - okkur er sama!

Tilkynning:

Þessi hópur hefur hér með eignast 9 m2 hústjald - 2ja metra hátt. Fann ekkert partítjald á rumfatalagerinn.is svo að smáaulýsingar mbl.is björguðu okkur. Við Harpa vorum að setja súlurnar saman áðan og það lítur helvíti vel út. Það verður gott að spila og syngja í því! Farin að hlakka massa-til!

8 Comments:

At 28 júní, 2005 08:27, Blogger Guðlaug said...

Frábært!!! Þú ert náttúrulega bara snilli ;-)
Ég get líka útvegað okkur tjaldvagn ef einhver (þ.á.m. ég) getur útvegað bíl með kúlu! Hvernig hljómar það?

 
At 28 júní, 2005 08:35, Blogger Tóta said...

Það hljómar ótrúlega vel - sérstaklega þar sem ég er með svefnpláss hjá ykkur ;)

 
At 28 júní, 2005 08:46, Blogger Guðlaug said...

Hehe! Ég get ekki fengið jeppann hjá pabba þar sem hann er á fullu að flytja efni til að smíða úr upp í bústað. Ef við reddum ekki bíl með kúlu, þá erum við svo sem ekki í vandræðum - með 2 stór tjöld a.m.k. og HÚSTJALD!!! Algjör snilld!

 
At 28 júní, 2005 08:58, Blogger Tóta said...

Ég er viss um að núna verður engin rigning í útilegunni af því að það er ekki hægt að bleyta okkur - það er alltaf þannig. Ef maður tekur með sér regnföt þá rignir ekki - og þetta er alveg eins!

 
At 28 júní, 2005 12:49, Blogger harpa said...

Það er fínt þá tökum við alltaf tjaldið með og þá verður aldrei rigning í útilegum hjá okkur!

 
At 28 júní, 2005 13:19, Blogger Tóta said...

Jaú - eriddiggi sníðúgt!?!

 
At 28 júní, 2005 14:09, Blogger harpa said...

Massann sniðugt!

 
At 29 júní, 2005 08:41, Blogger Tóta said...

Við veðum þá bara með blóm/tré inni hjá okkur;) Hafði ekkert hugsað mér að taka innra tjaldið með svo að það er bara opið að neðan.

 

Skrifa ummæli

<< Home