Allir úti um allt...

fimmtudagur, júní 16, 2005

Í útilegu...

Jæja, er ekki ágætt að hefja umræðuna um útlegustand. Við förum fyrstu helgina í júlí nánar til tekið 1.-3.júlí, stutt í það! Og þá er bara spurningin um hvert okkur langar að fara, hverjir verða saman í tjaldi, hverjir á bíl og svo framvegis. Mig langar persónulega ekki að eyða miklum tíma í keyrslu en vitaskuld reynum við að forðast úrkomuna eins og við getum :} Það hefur nú ekki gengið nógu vel hingað til, en þetta hlýtur að fara að koma hjá okkur. Ég er allavega farin að hlakka til, veit ekki með ykkur...?
Annars erum við Svenni að fara í vinnuferð upp í bústað til mömmu og pabba um helgina. Ljúft að fá svona þriggja daga helgi. Og svo er það bara útskrift um næstu helgi!!!
Hafið það gott um helgina :) Og Haffi og Brynhildur: Góða ferð! Ég vona að það rigni ekki á ykkur ;)

5 Comments:

At 17 júní, 2005 01:03, Blogger Tóta said...

Ég er bara búin að ákveða eitt varðandi útileguna - massafull!

 
At 17 júní, 2005 12:25, Blogger harpa said...

Við vorum búin að vonast til að fá fellihýsið lánað en pápi verður víst að nota það - goslokahátíð í eyjum sjáið til. Því eru það bara gömlu góðu tjöldin!

 
At 19 júní, 2005 22:29, Anonymous Nafnlaus said...

Við vorum að koma úr frábærri ferð, reyndar með blautt tjald og svona :- ) Ég hef lengi átt þá ósk að fara norður í útilegu en ætla svo sem ekki að troða upp á fólk þeirri hugmynd.
Við getum sennilega fengið pikk up en hann er frekar plásslítill-nema menn vilji sitja á pallinum???
Eins og sést get ég ekki ennþá bloggað..............
Brynhildur

 
At 20 júní, 2005 14:33, Anonymous Nafnlaus said...

Pittsburgh, PA ...

bara hugmynd!

kv. Jóhanna, sem vildi alveg fara með!

 
At 21 júní, 2005 10:52, Blogger Tóta said...

Hmmm... væri alveg til í að skella mér þangað Jóhanna ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home