Allir úti um allt...

mánudagur, september 26, 2005

IKEA - best í heimi!

Já - enn ein Ikea ferðin að baki og nú hlýtur þetta að fara að verða komið nóg. Eins og Guðlaug sagði á blogginu sínu var önnur tívolíferðin okkar s.l. laugardag og eftir hana borðuðum við utandyra og ég náði mér í kvef. Ég lá því allan sunnudaginn í hori, tárum og aumu nefi þar sem engar búðir voru opnar þann daginn (frekar en aðra sunnudaga) og engin leið að ná sér í nefdropa og snýtipappír! Mánudagurinn (í dag) var einnig rólegur og ég ákvað að vera ekkert að hætta mér í skólann heldur halda kyrru fyrir heima. Það gekk ágætlega þangað til Helgi og Sigga komu í heimsókn því að þá hringdi Guðlaug úr Ikea og við Sigga bara urðum að kíkja þangað. Ég er því kodda, blómi, blómapotti, teppi, ruslakörfu, spegli, fjórum kertastjökum, tólf kertum, púða, verkfærasetti, tveimur kössum og fimmtíu servíettum ríkari. Ég held að ég sé búin að fara sjö ferðir í Ikea síðan ég kom hingað fyrir um mánuði síðan. Þetta getur bara ekki verið eðlilegt! Er frekar uppgefin eftir daginn og er að hugsa um að fara að skríða upp í rúm með nýja koddann minn - hann Gosa Drömma. Góða nótt vinir mínir kærir.

6 Comments:

At 27 september, 2005 17:01, Blogger Tóta said...

Já takk fyrir það - svaf megavel með Gosa mínum Drömma og kvefið næstum alveg farið;)

 
At 28 september, 2005 10:32, Blogger harpa said...

He he dáldið fyndið. Ég held að þið baunalandsfólk séuðað standa ykkur miklu betur í að koma ykkur fyrir en við Beggi. Erum reyndar búin að fá nýtt rúm - alger draumur. Sófin og borð og tölva eru komin á sinn stað - en ekkert mikið meir en það. Erum alltaf á leiðinni að gera hitt og þetta en maður er alltaf svo busy eitthvað að ég hugsa að við tökum bara jólin í þetta;) .... og þó!

 
At 28 september, 2005 15:17, Blogger Tóta said...

Munurinn á okkur og ykkur er líka sá að við erum í skóla og komumst upp með að vinna ekki 100% ;)
Hvað er annars málið Harpa - ég er búin að reyna að senda þér meil en þú svarar bara ekki! Færðu ekki póstinn frá mér?

 
At 29 september, 2005 09:12, Blogger harpa said...

nei ég hef bara engann póst fengið frá þér! á hvaða e-mail ertu að senda? Hvaða e-mail eruð þið með nuna - fenguð þið ekki nýtt e-mail hjá skólanum eller hvad? blikk og bros harpa@stod.is

 
At 29 september, 2005 11:04, Blogger Tóta said...

ég er einmitt ad senda á thetta meil - skil ekki alveg hvad er í gangi. nennirdu ad senda mér meil á hi.is og thá get ég gert reply á thig. eitthvad meidjor problem í gangi hjá okkur;)

 
At 29 september, 2005 17:30, Blogger Guðlaug said...

Nýja e-mailið mitt er: s053092@student.dtu.dk

Endilega sendið mér póst ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home