Allir úti um allt...

þriðjudagur, desember 27, 2005

Gleðileg jól, elsku vinir!

Úff, hvað við erum búin að hafa það gott!!! Reyndar komu upp ofátstilfelli - en það leið hjá ;)

Ég hlakka ofsalega til að sjá ykkur öll á föstudagskvöldið! Það er því miður ekki víst að við náum að hittast fyrr þar sem dagskráin er nánast full hjá okkur. Það er líka svo skrítið að þið séuð flest að vinna um jólin, við höfum nefnilega minnst að gera yfir daginn.

Sjáumst á föstudaginn!!!

miðvikudagur, desember 21, 2005

Ekki örvænta!

Við komum annað kvöld!!! Er ekki örugglega búið að mynda móttökunefnd og skipuleggja heljarinnar partý fyrir komu aðalfólksins?!?




Nei, svona, ég bara spyr?